Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Sól, sól skín á mig...

Nú getur farið að vora því í dag var fyrsti dagurinn á árinu sem sólin skein inn um eldhúsgluggana hjá mér. Það gerði hún í um 15 mínútur og dugði það til þess að hækka hitann þar um svona 10 °c og fá mig til að óska eftir skýi. Cool

En nú verð ég að búa mig undir breytta tíma. Verð að færa fuglana, þurrka oftar af og kveikja á viftunni.

Þetta er nú samt þess virði því núna hlýtur að fara að vora, ég bara finn það á mér... 


Hvað eru mörg hjól á strætisvagni?

Þetta var spurning í stærðfræðihefti Magna Steins í dag.

Sniðugt að hafa fleiri, fleiri blaðsíður um strætóferðir í stærðfræðihefti sem lagt er fyrir hóp af 8-9 ára börnum sem fæst hafa í strætó komið. En samt í rauninni gott þegar það kemur að þessari spurningu því það er séns að börnin flæki síður fyrir sér svarið. En Magni Strætófari þurfti að spurja mig enda veit hann alveg að það séu til ýmsar gerðir strætóum. Hvaða svar væri æskilegast? Venjulegur 4? Eða kannski tvöfaldur 8? eða kannski 6? Við ákváðum að svara bara 4. Enda var talan bara svona grunnur fyrir spurningar eins og "Hvað eru mörg hjól á 3 strætisvögnum?"

En kannski fjallar næsta hefti um landbúnað eða ferðir skólabíla? Svona eitthvað sem börnin hér geta fundið sig í.

En að öðru:

Ég fór á pósthúsið í dag. Var reyndar að leita að símanum mínum (önnur saga og lengri, seinna ef ég nenni). Þar var hellings póstur sem fór næstum allur beint í ruslið. En þar var líka lítill miði um að ég ætti pakka frá Brandararíkjunum. Hérna má sjá það sem var í honum:

Það sem næst ekki vel á mynd er að Valentínus (sem hann heitir núna) er alveg agalega mjúkur og alveg yndisleg lykt af honum. Hann sat nefnilega á nammifjalli LoL


Ár og dagur

Já, einmitt!!

Svo merkilegt sem það er þá er ár og dagur síðan ég asnaðist til að mæta á þorrablót seinast. Og það dró svo sannarlega dilk á eftir sér. Því þar var Jorrit, alveg tilbúinn til að bjarga konu í sjálfsköpuðum vandræðum. Sem betur fer höfum við ekki gert það að vana síðan, hann að bjarga mér also, en þetta eina skipti var alveg nóg fyrir mig. Hef ekki losnað við manninn síðan, enda hefur mér ekki langað til þess.  InLove

Ég vona bara að við verðum heldur nær hvort öðru á næsta afmæli. 

En hér er fín mynd af sönnunargagni A:

015

Sko,  mér var bara ekki undankomu auðið InLoveHeart


Öskudagur

017Það var haldið hátíðlega upp á öskudaginn hér um slóðir. Það var skólaball í gær þar sem allir mættu prúðbúnir og var víst mikið fjör.

Svo gengu þeir sömu í fyrirtækin hérna í þorpinu og sungu. Og ég get sagt ykkur að ALLIR sungu. Líka töffararnir í 10. bekk. Þorgeir fékk meira að segja 1 lag sérstakleg fyrir sig frá stelpunum sem voru í 1 bekk þegar hann var húsvörður.

Magni, sem er alltaf svo góður við mömmu sína, sagði við mig í gærkvöldi: "Mamma, þú mátt eiga karamellurnar" vitandi það að mér finnst svoleiðis best en honum verst. Og þegar ég spurði hann í kvöld hvað hafi verið skemmtilegast sagði hann lágt: "Að koma til þín í vinnuna".

Þetta var ágætur dagur og það sem toppaði hann (fyrir utan sonur minn) var þegar konurnar í Sparisjóðnum hringdu í okkur (Þorgeir) og skömmuðu hann fyrir að etja næstum-stæstu strákunum í að syngja alveg agalega dónalegan söng. Þeir hofðu nefnilega komið til okkar fyrst með þessa þvílíka sóðalegu vísu (um Saddam og fjsk sungna eftir Gamla Nóa). Þegar þeir höfðu lokið sér af spurði Þorgeir í forundran (svona hálfvegis) hvort þeir hefðu sungið þetta fyrir áðurnefndar konur. Við héldum að þeir hefðu farið þangað fyrst. Drengirnir voru greinilega með smávæginlega heyrnarskerðingu og tóku þetta sem beiðni um endurflutning uppfrá. Úbs Devil

Og svo náttúrlega þegar einn söng hálft "Blessuð vertu sveitin mín" fyrir að vera of seinn. Það var náttúrlega glæsilegt. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband