Elva Guðmundsdóttir

Fædd á Fæðingarheimilinu í Reykjavík þann 22. apríl árið 1975. Var að flýta mér svo að ég myndi sleppa við að fara með mömmu í stúdentprófin. Hef síðan lítið stækkað en farið í mörg próf enda orðin sprenglærður mannfræðingur.

Flutti norður í land rétt rúmlega 3ja ára og hef eiginlega ekki sloppið þaðan aftur enda er S-Þing besti staður á jarðríki.

Ég á helling systkynum, 1 bróður og 5 systur (3 mömmu megin og 2 pabba megin). Ég á einn yndislegan frænda og alveg ótrúlegan son. Svo er maðurinn minn sá allra magnaðasti maður sem ég hef kynnst.

Ég bý núna í Pembroke Pines, Flórída og húsmæðist fyrir manninn minn sem er flugkennari við Pelican Airways flugskólann.

Heimilsfangið hjá okkur er:

1280 SW 101 Terrance, Appartment 204.

Pembroke Pines, Fl 33025

Florida

USA 

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Elva Guðmundsdóttir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband