Raindrops Falling on My Head...

Fyrstu vikurnar eftir að við Jorrit komum hingað til Álasunds var fínt að vera hérna. Sól og nokkuð hlýtt, logn og blár var aðal liturinn.

Auðvitað ringdi við og við eins og gengur. Frekar hressilega í flest skiptin en það mátti nú búast við því, hérna í regnbelti Noregs.

Nú er komið haust og við söknum agalega regnskugga Vatnajökuls.  Þvílík bleyta! Grár er aðal liturinn seinustu vikur.

Það hefur ekki liðið einn sólarhringur án rigningar síðan einhvertíman í ágúst. Það hafa komið svona 3 dagar í september þar sem sólin hefur skinið að einhverju gagni en þá hefur bara ringt um nóttina til að ná upp rakanum. 

Fyrir þá sem hafa búið í Reykjavík er þetta svosem ekkert sérstakt. Ég man eftir því að haustið sem ég flutti suður fyrst ringdi uppstyttulaust í 6 vikur. Ég hélt að ég myndi, ef ég dæji ekki úr sólarskorti fyrst, verða mosavaxin.

En það var bara amatörarigning. Bara svona smá úði miðað við hér. Rigningin hér er alveg á pari við hitabeltisrigninguna í Flórída, svona í magni á tímaeiningu. En þessi rigning er mun undirförullari en Flórídarigningin. Kemur hvar og hvenær sem er og úr ýmsum áttum. Ekki á milli 2 og 4 eftir hádegi eins og hin og beint niður nema í sérstökum tilfellum.

Svo er þoka, auðvitað, og þessi fínu ský sem eru reglulega það þykk að það er nauðsynlegt að kveikja ljós um miðjan dag. Myrkur um miðjan dag er svosem ekkert vandamál en kannski svolítið niðurdrepandi svona í september. En þarna er þó komin skýringin á því af hverju fólk hér er svona bjart yfirlitum.

Við vonumst til að þetta sé bara haustið, en munum kaupa pollagalla til öryggis.

Ég held nú samt að þetta sé frekar viðvarandi ástand því að haustferð skólans hans Magna var farin í slagveðri og roki. Líklega hefði hefði henni verið frestað heima en hér var engin miskunn! Bara vatnsheld föt og stígvél og út í skóg! Líklega gætu nemendur haft það af að útskrifast úr skólanum án þess að fara í eina einustu haustferð ef það mætti ekki fara í rigningu. En drengurinn kom heim eins og hundur dregin af sundi, nokkuð sáttur með daginn.

Það erum bara við, gamla liðið, sem erum að verða vatnssósa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahaha sonur minn myndi sveiflast milli alsælu og ömurleika í þessu veðri. Það er gaman að hoppa í pollum en óþolandi þegar lekur ofan í hálsmál eða kemur vatn í augun...

Hér er bara alltaf eins veður, eini munurinn á veðrinu núna og veðrinu um miðjan ágúst er að hitinn er búinn að lækka um ca 10°c og loftið er ekki jafn ógeðslega rakt. Það fer meira að segja bráðum að vera hægt að sofa með lokaða hurðina (út á svalir). Það rigndi jú í klst um daginn, og einhverjar nætur hefur verið rakt en ekki meira en það.

Edda Rós (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband