"And engine two is no longer on fire!"

Það líklega tími kominn fyrir smá fréttabréf.

Hitakútavesenið virðist vera að mestu yfirstaðið en seinasta vika var óvenju fjörleg vegna þess. Reyndar er parkettlaust í eldhúsinu en ég ætla ekkert að stessa mig yfir því hvenær nýtt parkett mætir á svæðið. Eins og staðan er í dag lítur stofuparkettið ótrúlega flott út en það er hætt við að þegar eldhúsgólfið verður orðið nýtt og fínt að aðalglansinn fari af stofunni.

Hinir heimilismeðlimirnir hafa það ágætt en Jorrit kláraði eitthvað samvinnunámskeið í seinustu viku og Magni segist vera að kafna í heimavinnu ("Ég er drowning í heimavinnu" líklegast, smá skipulagsvandamál í tungumálastöðinni vegna norskunnar). Samvinnunámskeiðið snérist víst mest um illa lokaðar flugvélahurðir og óþarflega villtan bruna í heyflum.

Mér fannst að það mætti fara meira í algengar samskiptagildrur á vinnustað. Eins og að áður en klipið sé í afturenda samstarfsaðila sé afa mikilvægt að fara í gegnum gátlista um kynferðislegan áhuga og viðeigandi hegðun í vinnunni. Annars er hætt við að fólk endi í slagsmálum í farþegaríminu eins og gerðist hjá starfsfólki Air India um daginn. Ekki það að minn elskulegi Jorrit þurfi á slíkri þjálfun að halda... Er það nokkuð, elskan?

Reyndar er farið í hver eigi að hlusta á samskiptatækin og þannig, en eins og seinustu fréttir sanna þá er það greinilega snúnara en virðist í fyrstu. Og svo fengu nemarnir þjálfun í að tala við farþegana, aðalega til að tilkynna þeim að allt sé farið hálfa leið til  fjandans. Mér skilst að listin að tala óskýrt um veðrið og landslagið í belg og biðu sé kennd á framhaldsnámskeiði fyrir flugstjóra.

Ég sjálf er algerlega búin að sanna að ég verð aldrei stjörnuhúsmóðir. Engin hekl eða prjónþörf hefur brotist út. Púss og bón aðgerðir eru í lágmarki og kvöldmaturinn er ennþá alveg laus við frönsk orð í titlinum. Ítölsk kannski, ég meina: Pitsa, pasta en ekkert súffley. Reyndar er ég (finnst mér) orðin ágæt í gerbakstri.

Hinsvegar er ég aldeilis búin að lesa netið fram og aftur. Til dæmis veit ég núna að Pressan er málið þegar kemur að slúðri! Búin að finna TED sem er snilld sem og ýmsir aðrir slíkir staðir. Gallinn er bara að latur hugurinn er miklu meira tilbúinn að horfa á þætti á YouTube en að reyna á sig svona. 

Og svo reyni ég við norskuna. Ástarævintýri Arne og Sue er að verða alvarlegt og seinast héldu þau upp á áramótin saman. Reyndar finnst mér hann Konrad Sejer heldur áhugverðari með Söru sína, en ég er núna komin að "Drapet paa Harriet Krohn" í þeirri sögu. Merkilegt hvað frú Fossum er upptekin af hörmulegum mistökum venjulegs fólks.

Jæja, núna er Jorrit kominn heim, þarf að sinna honum. Draga af sokkana og skera matinn hans og svoleiðis, eða þannig LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman þegar þú setur eitthvað á síðuna. Þú getur líka sagt frá gönguferðum o.s.frv. Þar sem þú hefur nægan tíma til að gera hitt og þetta þá vantar mig að þið mælið hvort annað þú og Jorrit. Ég er í miklu prjónastuði og hef verið síðan ég ruglaðist í fyrra. Ég er búin að prjóna peysur á tvíbbana hennar Drífu, peysu á Hartmann, peysu á Hrafnkel, kjól á skvísuna hans Ödda, barnateppi fyrir Valdísi og Bylgju og nú er ég byrjuð á jólagjöfunum. Ég stefni á að prjóna lopapeysur á tengdasynina og mig langar að spreyta mig á að prjóna kjól á frú Elvu. Er byrjuð á einni peysu ekki viss hvort hún er á Jorrit eða Tryggva (stór) en nú vantar mig mál: ummál (brjóst), ermalengd og hvað peysan má vera síð (frá handakrika og niður). Hjá þér þarf ég að fá ummál, ermalengd, mjaðmir, mitti. Þið ættuð að geta þetta fyrir mig.

mamma (IP-tala skráð) 27.10.2009 kl. 13:16

2 identicon

Ekki að þetta komi póstinum hennar Elvu við, já eða spurningunum hennar mömmu EN mamma þegar og ef þú prjónar á Dodda hafðu þá í huga að hann er um 180cm á hæð (M yfirleitt) en ef þú mælir handa á milli þá eru það um 190cm - já hann er einsog api og getur nánast klórað sér á hnjánum án þess að beygja sig neitt

Edda Rós (IP-tala skráð) 28.10.2009 kl. 11:13

3 identicon

Skemmtileg lýsing á Dodda Edda ;), sá þetta alveg fyrir mér. En Elva hefur þú prófað www.stumbleupon.com?

Álfhildur (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband