Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Your Amazon.co.uk order has dispatched

Alltaf gaman að fá svona tölvupóst. Sérstaklega þegar hann er á undan áætlun. Reyndar var þetta bara partur af því sem ég pantaði en samt...Joyful

Latur vindur

Jæja, hérna sitjum við mæðgur við eldhúsborðið í Teignum og fiktum í tölvunum okkar. Sniðugt svona þráðlaust net!

Við mæðginin fórum semsagt niður í Hverfi í gær. Hugmyndin var að fara á Húsavík í apótek en þegar komið var í foreldrahúsin var tekin ákvörðun um að gera hlé á ferðalaginu vegna veðurs. Þá var ástandið slíkt að snjókornin voru hætt að falla til jarðar heldur ferðuðust lárétt frá norðurs til suðurs. Og það var svona Diskheimskur vindur, þessi lati.

Í morgun heyrði ég son minn skamma foreldra mína fyrir eigingirni. Þau eru nefnilega búin að panta sér ferð suður á bóginn og ætla EKKI að taka hann og Hrafnkel með! Honum finnst nefnilega að þar sem þau foru til Marmaris seinasta sumar alein, sé kominn tími að taka aðalmennina með. En hann æsti sig ekkert mikið. Núna eru afarnir nefnilega að klára aðra Indiana Jones mynd dagsins og þeir eru búnir að standa í þyrlusamsetningu í millitíðinni. Nóg að gera.

Annars bíðum við eftir vonda veðrinu sem spáð var í kvöld. Það snjóaði áðan og kom smá vindur en ekkert spennandi ennþá. 


Kominn tími til að tengja...

Svona til að setja eitthvað á síðuna þó að andleysið sér algert hérna. En þessi var tekin í afskaplega skemmtilegri stemmingu á seinasta laugardag. Skoðið og segið síðan öllum hvað Mývatnssveitin er falleg á veturnar!vetrarmyndir 007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband