Mallinn minn!!

Það virðist vera að þema ársins 2007 sé innantökur. Alla vega hingað til.

Hrafnkell og Edda byrjuðu árið með ælupest og Valdís hefur verið frekar græn seinustu daga. Ég fór sjálf að finna fyrir gömlum fjanda seinni part sunnudags.

Þá var mallinn á mér greinilega búinn að fá nóg af kökum, nammi, reyktum mat og snakki! Sérstaklega í svona miklu magni. (Eða þá hann saknaði þeirra svona mikið eftir jólin? Ég var nú búin að trappa mig töluvert niður fyrir þrettándann).

Síðan hefur mér verið kalt, óglatt og illt í maganum. Svo er ég máttlaus og ákaflega syfjuð. Og heyri stanslaust garnagaul þegar maginn er að prófa nýja hreyfingu upp á grín. Sick

Helv*& magakrampi!!

Ástandið er þó heldur skárra í dag en það var í gær, held ég. Galdurinn er víst að verða ekki mjög svöng og láta ekki undan lönguninni í mat á borð við rækjusalat á ritzkexi eða ídýfu með saltstöngum (sem virðist á undarlegan hátt fylgja svona magaköstum hjá mér).

En ég hlýt að hressast brátt, þetta er svo leiðinlegt ástand!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragna Þorsteinsdóttir

ég er líka búin að vera svona en ég hef samt ekki ælt neitt nema bara þarna á nýársdag, sem svosum hafið ekkert með ælupest að gera ;)

þó svo að ég sé með sömu einkenni og þú þá er það nú aðalega bara prófatíðin hjá mér... þú ert væntanlega ekki með neitt svoleiðis ;)

láttu þér batna 

Ragna Þorsteinsdóttir, 11.1.2007 kl. 13:33

2 identicon

Ég hef fulla samúð með þér! Ég vona að þetta lagist sem fyrst hjá þér. Hjá mér lagaðist líðanin helling þegar ég fékk mér ekta kók, með helling af sykri.

Valdís (IP-tala skráð) 11.1.2007 kl. 15:05

3 Smámynd: Elva Guðmundsdóttir

Ég rétt náði að ljúka færslunni í gær áður en ég mundi hvað var málið með skyrið í gamla daga (var að pína ofan í mig skyr.is).  Svo þannig fór að ég skreið upp í rúm um fjögurleitið og svaf til kl 8, með hléum. Svo horfði ég á smá Quantum Leap áður en ég svaf aðeins meira. Er búin að vera ágæt í dag en 7, 9, 13.

Elva Guðmundsdóttir, 12.1.2007 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband