Bara smá

Helgin var viðburðalítil, sem betur fer!

Eftir þessa spennandi viku sem enginn Íslendingur mun gleyma var það ágætt.

Jorrit er byrjaður að vinna og Magni fékk með sér lestrarbók heim. Um einhverja körfuboltastelpu stundi hann. Íþróttaáhuginn er ekki að drepa barnið. Og um stelpu!

Ég skoðaði málið og komst að því að bókin fjallaði um Debbie Black sem er fræg fyrir afburðaleikni í körfubolta og fyrir að vera lítil (fyrir körfuboltamanneskju). Vonandi tekst mér að vekja áhuga drengsins.

Þegar ég var á leiðinni heim eftir spriklið og að koma Magna í rútuna sá ég lagningu mánaðarsins, ef ekki ársins (ef við tökum ekki með bílinn sem "lagði" umhverfis pálmatréð í inngangnum í hverfið um daginn)

dsc00034.jpg Maður verður að hafa gaman af þessu Tounge

Og já: Til hamingju með daginn, elsku mamma mín InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi mynd er alveg gullin! Á öfugri akrein og við gatnamót. Þó að það standi STOP þá er held ég ekki átt við að drepa á bílnum og skilja hann eftir þarna!

Bestu kveðjur vestur um haf.

Valdís (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband