Fleiri vondar fréttir

Viđ vorum ađ renna inn á bílastćđiđ ţegar símtaliđ kom.

Jorrit var ekki búinn ađ tala lengi ţegar ljóst var ađ eitthvađ mjög, mjög slćmt hafđi skeđ.

Á laugadagseftirmiđdag lögđu tvćr flugvélar af stađ í átt ađ ćfingasvćđinu yfir The Everglades. Önnur frá Ft. Lauderdale, hin frá North Perry, Pembroke Pines. Eitthvađ alvarlegt fór úrskeiđis eftir ţađ ţví hvorug ţeirra snéri heim á ný.

Ţegar orđiđ var ljóst ađ flugvélarnar mundu ekki skila sér var myrkur skolliđ á. Leit hófst hins vegar í birtingu í gćr og um áttaleitiđ fundust ţćr. Svo virđist vera ađ ţćr hafi skolliđ saman í loftinu og stungist síđan hver um sig í feniđ. En í raun veit enginn núna hvađ gerđist. Kannski kemur ţađ í ljós seinna.

Ţegar horft er á myndir og vídeó af flökunum er nokkuđ ljóst ađ flugkennararnir og nemendurnir (2 af hvoru) hafa látist samstundist eđa ţví sem nćst. Ţeir hafa ekki fundist enn en svćđiđ er afskaplega erfitt til leitar.

Flugvélin frá North Perry var ein af flugvélum Pelican. Í henni var einn af yfirflugkennurunum, hann Stuart, og nemandi hans. Ţeir voru báđir frá Jamaica. Ţeir voru einnig báđir međ flugmannsréttindi og Stuart var reyndur flugkennari. Mér er hugsađ til ćttingja ţeirra sem og ćttingja mannanna tveggja sem voru í hinni vélinni.

Núna er Jorrit í flugskólanum. Gerandi hvađ veit ég ekki ţví hann náđi ekki neinu sambandi viđ skólann í gćr né Svein Jonni, norska yfirflugkennarann. 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband