Jólaskap

Ég er búin að gera mitt allra besta til að grafa jólalagareynslu mína síðan í gær. Fann tvöfaldan jólalagadisk heima í Hrísateig og hef nú hlaðið honum inn í Dellu og hlusta af öllu afli.

Ekkert nennilag þar!

Edda systir er líka á svæðinu og höfum við getað rætt litgreiningar á hvítum hestum og fleira því tengdu. Tounge

Það er spilakvöld í kvöld og er ég þvílíkt að koma mér í gírinn. Vonandi tekst mér að fókusa orkuna og beina henni til Starmantle frekar en í naflaskoðunarpælingar. Enda þó ég hafi náttúrulega afskaplega fallegan nafla þá er allt í lagi að horfa á eitthvað annað við og við.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

vá hvað ég er sammála þér með þetta nennilag... alveg það leiðinlegasta "jólalag" ever!!

 Hafðu það bara annars gott og njóttu aðventunnar :)

Nafnan þín... (IP-tala skráð) 2.12.2006 kl. 22:17

2 Smámynd: Elva Guðmundsdóttir

Sko! Þarna var amk 1 kostur við að vera í NZ á þessum tíma árs. Ekki miklar líkur á Helga Björns!

Og sömuleiðis :)

Elva Guðmundsdóttir, 3.12.2006 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband