Áii!!

Ég var að kitla Magna áðan og hann náði að sparka þokkalega fast í barkann á mér. Það var ekkert gott og er ennþá bara þónokkuð vont. Ég fílaði mig aðeins eins og fórnarlömb söguhetjanna sem í bókunum sem ég er að lesa núna; War of the Spiderqueen. Sem betur fer var þetta óvart og það fylgdi ekki einhvert eggvopn í kjölfarið eins og í þessum bókum. Enda hefði það verið dálítið áhyggjuefni.

Ég er búin að baka smá í dag og laga til (undirbúningur fyrir afmæli) annars er dagurinn búinn að vera rólegur. Ætlaði kannski að kíkja í Fjósið eða í Böðin en það verður bara að gerast seinna. Var líka að vinna í næstum allan gærdag vegna Jólatöfranna.

Jólarnir létu sjá sig í gær í sveitinni. Það kom bara töluverður fjöldi fólks til að berja þá félaga augum og allir voru nokkuð kátir með daginn. Ég sannaði það enn og aftur að ég kann ekki á klukku svo ég missti af þeim í Dimmuborgum en ég ætla sko ekki að láta það fara fram hjá mér þegar þeir fara í bað um næstu helgi. Það er víst áhugaverð sjón.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það fer mjög lítið fyrir jólastemmningunni hérna á NZ. Reyndar var einhver jólaskrúðganga í gær - en einhvern veginn er ég ekki í neinu jólaskapi í 20 stiga hita

Elva (IP-tala skráð) 26.11.2006 kl. 22:32

2 Smámynd: Elva Guðmundsdóttir

Ég skil þig. Það gengur eitthvað illa að starta jólaskapinu hjá mér, í frostinu og snjónum. Það kemur kannski eftir afmæli afkvæmisins. Hver veit?

Elva Guðmundsdóttir, 27.11.2006 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband