Dýrasögur

Fyrir óreynda íslendinga, eins og Magna og mig, er Suđur Karólína alveg vađandi í allskonar kvikindum.

Allskonar skorkvikindi, köngulćr og ţesslags eru út um allt.

Fuglarnir eru náttúrulega fćrri en ţađ sem viđ eigum ađ venjast, en fleiri tegundir. Núna eru kanadagćsirnar td nánast búnar ađ taka yfir flugvöllinn. Ţćr eru örugglega búnar ađ sjá ađ völlurinn vćri ekki nćgilega nýttur undir vélfuglaflugćfingar. Gammar hnita hringa yfir okkur, og skógardúfur hoppa í kringum okkur.  Viđ heyrum í ránfuglum í skóginum og Blue Jay-fuglar hreiđra um sig í trjánum.

Ţađ er allt vađandi í villiköttum. Ţeir eru nú ekki komnir af villiköttum í langferđartali ţví ţeir eru hvítir, svartir og bröndóttir. Reyndar frekar margir hvítir, kannski var einhverskonar hvítur Greebo á svćđinu. Ţeir eru ekki mjög krúttlegir, margir hverjir. Frekar horađir oft og aumingjalegir. Í skóginum er víst White tail deer. Ţvottabirnir og pokarottur finnast hérna víst líka.

Svo eru ţađ skriđdýrin og froskdýrin.

Hérna er víst urmull af ţeim. Viđ Magni sáum grćnan grassnák um daginn. Alveg agalega grćnan! Viđ Jorrit sáum um daginn einhvern svartan og rauđan um daginn og í dag sáum viđ eins og hálfsmetra langan King snake. Og auđvitađ var engin myndavél til stađar í öll ţessi skipti.

Á leiđinni í flugskólann gengum viđ Jorrit fram á agnarsmáa svaka grćna eđlu. Engin myndavél.

 Fyrir utan grćna trjáfroskinn um daginn erum viđ búin ađ sjá körtur og ţvílíkan helling af halakörtum.

Um daginn fórum viđ Magni í göngutúr, veiddum upp nokkur froskaegg og núna eru ţau ađ klekjast út. Ţćr eru agalega sćtar svona eins og ponsulitlir fiskar syndandi í plastdallinum sínum. Vonandi verđa ţćr ekki fyrir einhverjum alvarlegum skakkaföllum. Viđ ćtlum reyndar ekki ađ eiga ţćr lengi ţví ţegar ţćr verđa stórar höfum viđ ekki nćgilega góđar grćjur til ađ halda ţćr. En ţetta er mjög áhugavert fyrir okkur mörlandana.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gangi ţér vel međ gćludýraeldiđ

Álfhildur (IP-tala skráđ) 17.8.2008 kl. 16:21

2 identicon

Hvernig gengur ađ búa til heimasíđu fyrir Magna?

mamma (IP-tala skráđ) 25.8.2008 kl. 21:45

3 Smámynd: Elva Guđmundsdóttir

Er í vinnslu, er í vinnslu, mamma

Elva Guđmundsdóttir, 27.8.2008 kl. 15:47

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband