Luvlí
13.9.2007 | 16:24
Algerlega væri ég til í að vera sunnar á jarðarkringlunni í dag! Brr
Gæti látið mig hafa óheilbrigðar 30 gráður og krabbameinsvaldandi sól.
Það er rok með meiru og snjókomukrapavibbi úti.
Eitthvað bilað lið sem vill komast til Öskju.
Verst að það er örugglega bilaðra lið sem spyr ekki einu sinni!
En öll él stytta upp um síðir og á morgun verður örugglega orðið fært til að moka þessa vitleysinga upp úr sköflunum.
Læt fylgja eina tákræna mynd. Svona ef fólki vantar eina til að ná stemmingunni á rétt ról
Athugasemdir
Hér
Júlíus Sigurþórsson, 13.9.2007 kl. 16:52
Hér á Selfossi er sól og blíða. Ósköp ljúft að vera úti
Júlíus Sigurþórsson, 13.9.2007 kl. 16:53
Úffff aumingja sætu blómin sem við Saga settum niður í sumar : /
Íris (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 17:38
Jæja, það er gott að veðrið sé ekki alls staðar ömurlegt! Annars er óskup ljúft að vera inni núna. Vildi bara að ég þyrfti ekki að sækja drenginn í afmæli
Elva Guðmundsdóttir, 13.9.2007 kl. 17:39
Hrmpf!
Það brast á með slyddu hérna áðan!
Júlíus Sigurþórsson, 15.9.2007 kl. 15:19
Þið eruð greinilega bara 2 dögum á eftir
Elva Guðmundsdóttir, 15.9.2007 kl. 21:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.