ÉG nenni ekki...

...að hlusta endalaust á "Ef ég nenni..." ein jólin enn!

Ég hef nú áður tekið smá rant út af þessu "jóla"-lagi en þetta var nú fyrsta þannig lag sem ég heyrði þetta árið. Urr Angry

Þá vil ég frekar heyra "Jólahjól" milljón sinnum!!!!(!)

Annars rakst ég á þessa grein á mbl í morgun: http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1238561

Ég held að fréttin sé einka skilaboð til mín frá guði um að slappa aðeins af. Annars mun ég að öllum líkindum hafna riddaranum á hvíta hestinum á þeim forsendum að brynjan hans sé of vel pússuð*

 

*5 upphrópunarmerki nb, lagast örugglega með vorinu Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég bara bókstaflega hata nennilagið, fjandinn hafi það maðurinn á ekkert að gera þessa hluti ef það er spurning hvort hann nennir þeim eða ekki!

Hvað hitt varðar þá held ég að stærsti galdurinn við að kynnast manni sé að hitta menn, hvar það er gert er svo annað mál... Hvítir hestar eru samt ekki til þeir eru víst allir gráir, það passar við mína reynslu líka (sorry Doddi, ekki ílla meint).

Edda Rós (IP-tala skráð) 1.12.2006 kl. 13:01

2 Smámynd: Elva Guðmundsdóttir

Áður fyrr var það afsökunin mín; ég hitti aldrei neina. En seinasta 1/2 árið hefur það verið heldur þunn afsökun. Hef hitt á þessu tímabili, ja, amk tug manna sem hafa komið greina en enginn þeirra hefur staðist ástandsskoðun. Ég hef bara leitað af lituðum hárum þangað til að ég hef fundið þau! Og er ekki frá því að ég hafi jafnvel mætt með háralit þar sem engin hafa fundist.

Elva Guðmundsdóttir, 1.12.2006 kl. 13:50

3 identicon

Doddi stóðst ekki fyrstu skoðun hjá mér, það tók Valdísi og Tryggva forever að koma sínum lífum í það horf að þau pössuðu saman, svo að ég trúi ekki á ást við fyrstu sýn. Annars eru til margir sexy menn með grá hár, Sean Connery var ótrúlega sexy alveg þangað til að hann komst yfir sjötugt, George Clooney er eldri en mamma og pabbi (held ég, amk á svipuðum aldri) og hann er sexy á sinn hátt, Einar Gísla er jafngamall mér og gráhærður og kannski ekki endilega sexy en sætur og sjarmerandi á sinn hátt. Pointið er að þó þú finnir grá hár þá þarf það ekki endilega að þýða að þeir séu of gamlir eða óaðlaðandi. Svo eru líka sumir sem maður þarf að "venjast"

Edda Rós (IP-tala skráð) 1.12.2006 kl. 14:35

4 identicon

hafir þú ekki tekið eftir því Elva þá er Edda að reyna að koma þér út þú vandláta kona ;). Hafa það bara eins og allar konur sem ég þekki sem hafa verið á markaðnum síðustu ár, þær ná sér í miklu yngri menn því þar er jú úrvalið ;)

Álfhildur (IP-tala skráð) 1.12.2006 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband