Best í Ameríku

Það að allt sé betra í henni Ameríku er nú ekki alveg rétt, amk miðað við reynslu okkar Jorrit. Við erum reyndar vön góðu.

Húsin eru voðalegir kofar, meira að segja húsið sem við búum í núna sem er fellibyljahellt og allt. Að láta kíkja á bremsurna og setja nýja bremsukubba/borða kostar hátt í 100 þús kall. Gangstéttirnar eru mjóar og eru frekar til sýnis heldur en til notkunnar.

Og fyrir þá sem eru pirraðir yfir græðginni hjá Símanum: GSM áskrift kostar hér lágmark 30 dollara á mánuði. "Frelsi" kostar annað hvort 25 sent mínútan eða 10 sent mínútan og 1 dal hvern dag þegar síminn er notaður. Sem væri nægilega pirrandi ef maður væri bara að borga fyrir sín símtöl og sms sem maður sendir. En nei, maður borgar jafnmikið fyrir símtöl og sms sem annar sendir/hringir til manns sjálfs. Og maður borgar fyrir sms hvort sem maður opnar þau eða ekki. Allveg snilld þegar maður fær sms frá at&t (símafyrirtækinu) og þarf að borga 1 dal og 10 sent fyrir.

Eitt af því sem ég hélt að væri verra hérna en heima voru þvottvélarnar. Þvottavélin í Conway þvoði þokkalega en tókst að éta upp þvottastykkin, sem Jorrit keypti þegar hann flutti, á innan við ári. Þvottavélin hér hrærði bara í þvottinum og skilaði honum næstum eins skítugum og hann var fyrir þvott. Nema þegar kom að peysunni sem ég keypti í Wal mart og skólabuxunum hans Magna. Peysan hefur nánast verið þvegin í hengla á 3 mánuðum og buxurnar koma alltaf með þvottaefnisblettum úr vélinni.

Ég var nánast búin að sætta mig við að vélin væri bara vonlaus en ákvað að fara samt og láta allrahandarkallana kíkja á hana.

Fyrir hálft orð kom hann Ian og skoðaði vélina. Það voru einhver plaststykki víst brotin svo að snúníngsgæjan í miðjunni snérist ekki rétt. Tók svona 5 mínútur. Og ég er búin að bölva þessari vél í marga mánuði!

Nú jæja. Ég verð víst að finna mér eitthvað annað til að pirrast yfir. En mér líður smá sauðalega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er sérstaklega blóðugt með símtölin og SMS-in. Fáránlegt að þurfa að borga fyrir auglýsingaSMS sem fyrirtækið sendir manni, eða þegar einhver hringir í vitlaust númer.

Valdís (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 08:23

2 Smámynd: Elva Guðmundsdóttir

Já, sérstaklega pirrandi. Ég var alltaf að fá sms og upphringingar frá einhverju fólki sem þekkti fyrrverandi eiganda (eða eigendur) símanúmersins míns. Svona 1 á dag til að hreinsa út inneignina sem fyrst. Það endaði með því að við skrúfuðum fyrir sms-in en núna er alltaf verið að hringja í Jorrit frá einhverjum banka. Alveg frábært. Ég hugsa með trega til Símaáskriftarinnar minnar heima.

Elva Guðmundsdóttir, 4.3.2009 kl. 12:57

3 identicon

Síminn hérna er líka miklu dýrari en heima - en ekki jafn heimskulegur og hjá ykkur

Edda Rós (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 14:14

4 identicon

HEY! þetta tókst!

Edda Rós (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 14:14

5 Smámynd: Elva Guðmundsdóttir

Til hamingju! "Þeir" voru greinilega uppteknir annarstaðar, Edda. Og já, Síminn var kannski ekki alslæmur.

Elva Guðmundsdóttir, 5.3.2009 kl. 16:50

6 identicon

virkar þetta nú? þetta virkaði nefnilega ekki í þriðja skiptið

Edda Rós (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband