Helgarbloggið
19.3.2007 | 22:06
Þökk sé veðrinu var helgin laus við eitthvern þvæling og þétta skemmtidagskrá.
Ég plataði Jorrit til að renna upp á hálendið á föstudaginn og svo var bara legið í leti og ómennsku, eða næstum.
Ég náði samt að koma húsinu í þokkalegt stand, húsgögnunum var skákað til, kaka bökuð og óvenjulega mikil almenn eldamennska. Enda virðast Magni og Jorrit hafa það sameiginlegt að verða illa saddir af nammi og finnast það vera eitthvað merkilegt að borða kvöldmat! Fyrir mína parta nægir alveg bland í poka fyrir 150 krónur og súkkulaði í matinn á laugardögum.
Annars var bara notalegt að liggja upp í sófa í gær. Skafrenningurinn og snjókoman byrgði sýn úti og ekkert annað við tímann að gera.
Hinum megin við borðið
16.3.2007 | 18:09
Í vinnu minni í Mývatnsstofu og áður Hvalasafninu horfði ég ósjaldan upp á mökkstressað fólk nánast brotna saman fyrir framan mig út af því að því vantaði gistingu. Það var kannski með 3 börn, í ókunnu landi, kunni ekki málið og var rétt búið að fatta að bókunin þeirra hafði eitthvað misfarist á leiðinni.
Sem sagt tími til að gráta eða, eins og sumt fólk gerir, rífast við allt og alla.
Þetta snerti mig samt aldrei neitt djúpt, þannig. Ég bara hringdi 20 símtöl og greiddi oftast úr vandanum. Ekkert mál.
En núna áðan var ég að svitna við að finna gistingu í Borg Bleytunnar.
Ómægod!
Hvað er annað fólk að flækjast til borgarinnar og teppa fyrir mér gistihúsin?
Bara skil ekki fólk!
Það var ekki fyrr en eftir dúk og disk, pirring og geðvonsku, sem mér tókst loks að tryggja mér og co húsaskjól!
Ég er samt orðin tortryggin og ætla að hringja á mánudaginn, til öryggis. Þó að ég og Jack, símapiltur, hafi verið orðin mestu mátar þá er aldrei að vita...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Vorboðar
15.3.2007 | 18:05
Núna er sól byrjuð að hækka almennilega á lofti.
Þetta finnst heima hjá mér með því að ef það er nokkur smuga fyrir sólina að skína inn er 30 stiga hiti inni! Amk ef ég gríp ekki til verulegra ráðstafanna. Það telst td vera verulegar ráðstafanir að opna glugga í stofunni því að þeir eru upp undir þaki og ég þarf að klifra. Afskaplega virðulegt!
Ég bíð spennt eftir sumrinu í þessu húsi.
Svo var að koma tilkynning frá skólanum um það að frá og með mánudeginum væri bara sund hjá börnunum. Ef það er ekki vorboði þá veit ég ekki hvað!!
Þetta þýðir líka að ég verð að neyða sjálfa mig til að fara að skipuleggja vor og sumar. Ekki það að nú finnst mér alveg nóg að plástra þarnæstu helgi saman svo að allir aðilar sleppi heilir frá henni.
En það reddast, eins og allt annað (eða svona því sem næst).
Það er að koma vor!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kæru stubbar...
12.3.2007 | 12:13
Nú er enn ein helgin að baki. Helgi nr 5 eða svo taldist okkur til.
Okkur...
Það er nýtt konsept í lífi mínu... amk í þessu samhengi...
Þarf að venjast en ég hef vanist verri hlutum... mun verri.
En við keyrðum á Eyrina á laugadaginn; við versluðum, við fórum með Dellu til læknis í Tjarnarlundinn, við borðuðum á Greifanum og við fórum í bíó. Á sunnudeginum fórum við í mat í Hrísateignum og sóttum barnið í pössun.
Sem sagt söguleg helgi.
Annars var búðarferðin ágæt, heimsóknin í Tjarnarlundin of löng vegna alltof skemmtilegra partýfara, pitsan lala (gleymdi vonda peppiróníinu á Greifanum) og "Songs and Lyrics" var fín. Ekki of væmin og myndbandið í byrjun er alveg óborganlegt. Hugh Grant er þó orðinn alveg svakalega krumpinn.
Sunnudagsmaturinn var eins og búast mátti við.
Og þó að það hafi verið ljúft að skíða upp í bólið mitt í gærkvöldi og hafa allt þetta pláss bara fyrir mig þá saknaði ég þess að vera ekki lengur í fleirtölu.
Ætli ég verði ekki að viðurkenna að mér er náð...
Föðursystir!
9.3.2007 | 16:47
Já, mér voru að berast miklar fréttir:
Ég er víst orðin föðursystir! (Fyrir 9 dögum en fréttir berast alveg hæfilega hratt í föðurfjölskyldunni minn)
Ég fór inn á síðu litla frænda míns og miðað við myndirnar á forsíðunni er barnið sláandi líkt í föðurættina. Ég sá bara Magna Stein nýfæddann! Sem sagt afskaplega fagurt barn
Ég segi bara:
Það var mikið, Ásgeir!
Og innilega til hamingju, auðvitað!
Ég og tölvur!!
7.3.2007 | 23:12
Fékk net í dag. Mikil gleði!!
Eða þangað til að ég fór að reyna að fá Dellu til að gera eins og ég vil.
Della er með einhverja install-veiki þannig að hún hagar sér vægast sagt furðulega og vill ekki uppfæra vírusvörnina
Ég er reyna að útskýra fyrir henni að það sé ekki hollt fyrir miðaldra tölvur eins og hana að vera í samfélagi annara tölva án þess að vera með veikindavörn en hún er með einhverja uppsteit.
Það er nokkuð ljóst að tölvu-snillingarnir sem ég þekki fá símtal á morgun.
Svo það var ekkert MSN í kvöld né nokkurt annað fjarskiptatengt að neinu viti.
Vonandi varð þetta ekki til þess að opinbera myndin af mér (sem mér finnst svo falleg ) hafi farið eftir möskvum internetsins alla leið til Hollands.
Inn í 21. öldina
27.2.2007 | 08:40
Hmm... skiftir ekki máli í raun en áhugaverð pæling.
Svo er það bara spurning hvað það tekur langan tíma að draga Lynghraunið inn í 21 öldina.
Þá verður kátt í höllinni minni. Loksins tækifæri til þess að semja djúpar og kjarnyrtar greinar á bloggið (svona eins og þær sem ég samdi á gamla blogginu mínu þegar ég var með netsamband heima *tíst*). Svo get ég loksins einbeitt mér að því að semja ævintýri fyrir stuttlungana og bara misst mig í að skoða þessar og hinar æsandi síður, ss d20 og wizards.
Ég verð bara að finna góða leið til að leyna Magna Stein þessari nýung á heimilið. Ég held að það takist í svona...10 mínútur. Eftir það verður það víst að vera svakalegu uppeldishæfileikarnir mínir sem bjarga barninu frá netfíkn. Ja, eða það að taka Dellu með mér í vinnuna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tíminn flýgur
25.2.2007 | 19:03
Ójá, önnur vika flogin hjá!
Verð greinilega að taka fjarskiptamálin í gegn því að þegar eitthvað skeður, fleira en að sofa, vinna, borða, þá hef ég ekki tíma né nennu að blogga þar sem ég kemst í net.
Svo er ég aftur að fatta kostina við að notast við MSN af einhverjum ástæðum.
Það sem helst skeði í seinustu viku var:
Fundur fyrir sunnan á miðviku- og fimmtudag. Fínn fundur og ennþá fínni matur á miðvikudagskvöldið.
Við fórum nefnilega á Food and Fun á Sjávarréttakjallaranum og fengum alveg ægilega góða 7 rétta máltíð! Ekkert val en með hverjum rétti fylgdi munnleg útlistun á innhaldinu sem var mjög skemmtilegt!
Svo gisti ég hjá Eddu frænku sem var notalegt að venju. Það var gaman að sjá allar breytingarnar hjá henni, vígja svefnsófann og sjá að hún sé að hressast.
Það var Kósíkvöld hjá okkur mæðginum plús Helga James félaga á föstudagskvöldið. Pitsa og mynd. Smá mútur reyndar frá mér fyrir fundarsetuna og þá staðreynd að ég hafði lofað mér í gærkvöldi og Magni neyddist til að leggjast upp á gamla settið eins og svo oft áður. Helgi James gisti svo um nóttina og þeir félagar léku sér þangað til að farið var niður eftir í gær. Mikil hamingja á alla bóga.
Annað sem skeði á föstudaginn var að ég fékk sendingu úr Frumskóginum. Þar barst mér; Book of Clouds sem fjallar um ský (skrítið), Hinn óþægilegi sannleikur e. Al Gore, Næsta Kynslóð e. Hickman og Weis, Frostburn sem fjallar um kulda, Cold Feet season 2 og 3 og Northen Exp. season 1. Mikil hamingja!
Í gær var annars konar kósíkvöld svo núna er ég búin að borða úrvalsmat 4 kvöld í röð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvernig væri að blogga smá?!
19.2.2007 | 16:28
Það er svo merkilegt með þetta blogg-dæmi að þegar það er nánast ekkert að ske, þá renna bloggfærslurnar frá manni eins og heitar lummur, en þegar það er nóg að segja frá, þá má maður ekki vera að því að blogga.
Það er allavega afsökunin mín fyrir seinustu viku.
Virku dagarnir voru nú nokkuð venjulegir. Hangið svolítið meira í símanum en í meðalviku en ekkert svo. Ég fór reyndar á málþing á miðvikudaginn.
Helgin byrjaði með góðum kvöldmat og ennþá betri eftirmat.
Á laugadaginn var ægilega gott veður svo að frændurnir fóru með foreldra sína í sund. Magni reyndi við heimsmetið í "flestum ferðum í vatnsrennibraut í einni sundferð" en Hrafnkell virti litlu rennibrautina fyrir sér og ákvað að það væri örugglega skynsamara að fara niður í barnalaugina annars staðar. En þessir þrjósku foreldrar plötuðu hann til að prófa og hún var ekki svo slæm, svona eftir á.
Svo fórum við öll á Plaza, nýjan veitingastað sem er þar sem Pizza67 var. Þar hittum við kvefaða foreldra vora og fengum okkur alveg ágætis mat með þeim.
Eftir það var Magni sendur með greyjunum heim og við hin fórum í Aðalstrætið til að undirbúa okkur fyrir spilakvöld.
Trigger var að stjórna og tókst bara ágætlega upp. Mikið action og hann hafði af að nánast þurrka út hópinn á einum stað. Guði sé lof að við leyfum að persónurnar séu séðari en spilararnir og muni eftir að lappa upp á sig jafnóðum
Spilið dróst fram á morgun. Langt síðan slíkt hefur gerst en það er ákveðinn gæðastimpill á kvöldið. Hins vegar var ég með nokkrar svefn-klst í mínus þegar komið var að spilaborðinu svo að tíminn frá 2-5 var ansi erfiður. En þá hafði ég náð nægum dúrum til að endast til kl 7 þegar ég og rúmið mitt hittumst. En ég gat samt alveg fylgst með!! Svona eiginlega alltaf!! Ég var sko ekki alveg sofandi, bara að hvíla augun!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bissy helgi
12.2.2007 | 16:54
Það verður seint hægt að segja að ég hafi ekki gert neitt um þessa helgi!
Það sem fyrir lá áður en hún hófst var vinnuheimsókn sjálfboðaliðaforingjans á föstudag til laugadags og svo þorrablót Reykhverfunga á laugadagskvöldið. Þar ætlaði ég að skemmta mér með fjölskyldunni, dansa smá og svo fara heim til mömmu og pabba. Bara alveg eins og ég hef gert á öllum þorrablótum síðan ég var 14.
Þá gerði ég ekki ráð fyrir skopskyni örlaganornanna.
Við Chas vorum söm við okkur og töluðu hvort annað nánast í svefn. Bara hálfan bjór í viðbót og ég er viss um að við hefðum sofið í einni hrúgu á svefnsófanum (á platónskan, órómantískan hátt ). Ég var svo rétt búin að festa svefn þegar ég fékk afskaplega óvænt sms. Í staðin fyrir að segja manninum að eiga sig þá freistaðist ég til að svara kurteisislega og þá tók við klst langt session sem gerði ekkert fyrir ferskleikann daginn eftir.
Á laugadagsmorgun klifum við Chas á Fjellið og Skútustaðagígana áður en hann brunaði suður og ég heim í Heiðardalinn.
Dagurinn fór svo allur í að greina ættingjum mínum frá því hvað ég væri ægilega þreytt og syfjuð. En eftir góða sturtu og smá fegurðablund var mín orðin helvíti hress.
Kannski aðeins of hress því að guðaveigarnar runnu kannski aðeins of greiðlega niður í maga og svo út í æðakerfið. Þannig að ég get eiginlega þakkað kærlega fyrir að Hollendingurinn dansandi shanghæjaði mig heim á mettíma. Þá slúðrar fólk að minnsta kosti bara um hvar ég svaf frekar en hve ógeðslega drukkin ég var.
Ég veit ekki hvort hann hafi verið jafn lukkulegur með fenginn. Mér dettur margt meira heillandi í hug en ég var á laugardagsnóttina. En hann hjúkraði mér möglunarlaust til nokkurar heilsu áður en hann skilaði mér til föðurhúsanna. Alveg ægilega indæll í alla staði.
Ég var því helst fegin að ég fékk enga heimsókn í gærkvöldi eins og hugsanlega hefði getað skeð. Því að ég og rúmið mitt vorum eitt upp úr 9. Oh hvað það var gott!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)