Lagt í

Ég byrjaði að laga til í geymslunni í gær. Veitti ekki af því að draslið var farið að flæða fram á gang, bókstaflega!

Í einum kassanum fann ég nokkrar bækur sem systur mínar gáfu mér fyrir margt löngu. Bækur um allskonar tilraunir. Einnig fann ég tafl sem við Magni ætluðu reyndar að leita af.

Ég gaf Magna bækurnar og hann gaf sér næstum ekki tíma til að hlusta á kvöldsöguna því að hann var svo mikið að skoða.

Svo í dag gerðum við tilraun:

Settum ger, sykur, og vatn í flösku. Settum svo blöðru á stútinn og fylgdumst svo með.

Geðveikt gaman! Sérstaklega þegar froðan náði upp í blöðruna og blaðran þandist svo út að hún virtist ætla að springa!W00t 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta hljómar geðveikt spennandi... En hérna þú ert svo efna- líffræði sinnuð, er hægt að búa til batterí úr sítrónu? Mér finnst svo einsog við höfum verið að gera eitthvað svoleiðis í hafró en man bara ekkert hvernig það var

Edda og Hrafnkell (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 13:02

2 Smámynd: Elva Guðmundsdóttir

Ég hef heyrt af þessu með sítrónuna en aldrei reynt. Svona tilraunir voru sko ekki í móð á mínum yngri árum. Ég fékk ekki einu sinni að kryfja kýrauga eins og sumir

En það má örugglega finna upplýsinga um slíkt á veraldarvefnum.

Elva Guðmundsdóttir, 29.10.2007 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband