Hvernig er hægt að horfa EKKI út?

Ég fór aðeins í borg bleytunar á föstudaginn. Mætti einn fund og landvarðaslútt. Algerlega fínt eins og búast mátti við. Lærði td á nýmóðins þrifagræjur við að þurrka upp smá guðaveigar sem reyndu að flýja örlög sín.Whistling

Svo fór ég svo Kringluna á laugadag og náði að brenna smá pening.

Það var smá spenna í samband við flugið heim, veðurspáin agaleg og ófært til Egilstaða. En Akureyri lá greinlega betur fyrir vindi svo við fórum í loftið á réttum tíma og allt.

Á leiðinni var þetta þvílíka útsýni. Nánast engin ský og hæfilega mikill snjór á jörðu svo öll jarðsaga Íslands blasti við út um gluggann. Ég meina; ég er næstum viss um að ógeðslega háa fjallið sem ég sá lengst í suðaustri hafi verið Öræfajökull! Ef ég hefði setið hinum megin í vélinni hefði ég líklega getað séð Jorrit í Bandaríkjahreppi!InLove

Og svo var fullt af allskonar öðrum jarðmyndunum sem sýndu sig. En þegar mér varð á að skoða samferðamenn mína sá ég að fyrir utan mig voru alveg tveir sem horfðu út um gluggann! Hitt liðið var með nefið grafið ofan í mogganum eða pappírs-Skýinu. Eins og það sé ekki hægt að kynna sér samruna orkufyrirtækja á jörðu niðri? Og koma svo heim og segja "Flugið var svona lala, svolítil ókyrrð yfir fjöllunum"

Æji greyið þau, segi ég bara.GetLost


Á rúntinum

Við Þorgeir brugðum fyrir okkur betra hjólinu og renndum upp í Herðubreiðalindir í dag. Það vantaði að losa niður eitt skilti og henda inn í gám svo það fyki ekki út í veður og vind í vetur. Ferðin var tiltölulega létt og löðurmannleg og við hittum bara einn bíl á leiðinni. Nokkra unga menn sem ætluðu bara rétt að skreppa í Öskju. Þegar við komum að þeim voru grímurnar tvær greinilega að renna á þá. Þeir voru nefnilega ekki með bensín/olíu nema fyrir svona 3/4 leiðarinnar. Það þurfti ekki mikinn hræðslu áróður til að snúa þeim við.

Veðrið var ágætt en kyrfilega alskýjað og Drottningin sjálf setti á sig slæðu þegar við nálguðumst. Kverkfjöllin voru þó hæfilega uppljómuð í grámanum.

Okkur sýndist þó að heldur hafi glaðnað yfir hálendinu þegar við vorum á leið heim, en það er bara týbískt.

Ég náði þó nokkrum myndum og hér eru tvær: Þorgeir að setja hlerann aftur áDrottingin með slörið


Gömul saga og ný

Magni fékk að fara heim með vini sínum eftir skóla í dag. Þetta var þaulskipulögð heimferð. Menn ætluðu sko ekki að lenda í sömu vandræðum og seinast!

Ég var alveg hæfilega dugleg í vinnunni, finnst mér. Kláraði eina skýrslu og byrjaði aðeins á næsta verkefni.

Eða ég hélt að ég hefði klárað skýrsluna. Fékk svo einn feitann tölvupóst sem gekk illa í póstforritið. Þegar það fór á hliðina vildi það ekki opnast aftur svo ég ákvað að gera það sem er alsherjar lausn míkrósoft-notandans; endurræsa gripinn.

Eitthvað var undirbúningur undir endurræsingu undarlegur (og ef út í það farið ýmislegt annað klukkustundirnar á undan) því að allar fíniseringarnar á skýrslunni voru hvergi sjáanlegar. Alltaf jafngaman af því!Pinch

 Hefði eiginlega átt að fara á Eyrina í dag en... æji... langt og svoleiðis.... og svo var það alltaf skýrslan góða!


Smá myndir

ský28.09.07Ég tók myndir af skýjunum í morgun. Ekki nærri eins skrítin en í gær. Linsuskýin eru þó ennþá til staðar.

 

 

 

 

 

 

havaiirós28.09.07Svo tók ég mynd af Havaii rósinni minni sem tók upp á því að blómstra rétt í því sem ég ætlaði að klippa hana niður. Þetta eru svokölluð örskotsblóm þannig að maður verður að hafa hraðar hendur til að ná mynd.

 

Annars er Ragna systir í heimsókn hjá okkur mæðginum. Magni ætlar að baka handa henni köku á eftir en fyrst þarf hann að ræða lego við hana LoL


Fullur máni

Kjetkrókur stal hangikjötslæri úr Strax í dag. Hann flúði búðina á harðahlaupum og grýtti þýfinu svo inn um dyrnar á Mývatnsstofu þegar það fór að síga í.

Málið var settlað á milli Mývatnsstofu og Strax enda voru allir sammála um að Kjetkróki sé ekki alltaf sjálfrátt þegar kemur að góðu hangikjötslæri. Hann er haldin svokallaðri lærisfíkn.Devil

Líklegt er að þjófurinn sé núna niðurkominn í helli einhvers staðar í Dimmuborgum sem hann sefur vonandi fram í aðventu. Endilega gangið hljóðlega um Dimmuborgir þangað til.

Annað sem markvert var í dag var himininn. Hann var nefnilega málaður í dag. Af listamanni sem kunni ekki almennilega á þrívídd. En hafði afskaplega merkilegt litaskyn.Ýmislegt 006

Eða svo virtist

Og svo var máninn blindfullur í kvöld.

Es. Myndin hér við hliðina er ekki síðan í dag en sýnir svipað skýjafar bara ekki eins magnað og í dag.

Ees. Vegna áskorana: Jorrit tók annað prófið sitt í dag og gekk alveg agalega vel.


Harðjaxl

Nú er úti veður vont... og er að versna.

Auminga úllarnir sem detta inn til mín eru eins og hundar af sundi en reyna flestir að bera sig vel.

Sumir eru betri í því en aðrir.

Harðjaxl dagsins, vikunnar, mánaðarins og jafnvel sumarsins er án efa Paul.

Hann er búinn að hrekjast um Leirhnjúkssvæðið ásamt föruneyti seinustu 2 vikunnar. Í dag komu þau óvenju snemma niður af hnjúknum og heilsuðu upp á mig. Paul nú ekki sá hressasti en það má varla búast við því í þessu veðri. Þegar hópurinn var búinn að spjalla í dágóða stund spyr Paul mig hvort ég eigi nokkuð plástur.

Þá tek ég eftir að hann hafði vafið einhverju um hendina á sér og er að rífa það af á meðan hann fer bak við. Ég elti, agalega forvitin auðvitað, og kíki framhjá öxlinni á honum. Við mér blasir þessi líka skurður á handabakinu á honum. Ég hef ekki séð annað eins síðan að Bjarkey frænka þrusaði heygafflinum í gegn um ristina á sér um árið. Sick

Ég svitnaði og grænkaði en hafði það samt af (með töluverðu fumi nb) að búa aftur um sárið og sannfæra manninn um að fara til læknis. Þurfti reyndar ekki mikið til, held ég. Hringdi svo á vaktlækni á Húsavík, svona fyrst Paul gat nú ekki beðið með að slasa sig á skrifstofutíma.

Mér skilst að læknirinn hafi náð að bródera ein 4 spor í manninn sem er alveg ágætt.Whistling

Ég er líka öll að koma til. Ógleðin er öll að lagast og seiðingurinn í handarbökunum að minnka. En ugh, ef eitthvað er til þess fallið til þess að núlla blóðþrýstinginn á mér þá er það að sjá inn í kjöt á fólki.

Ég veit alveg að allir eru eins við beinið en ég þarf ekki að sjá það!


Aðeins að apa eftir

You Are Miss Piggy
A total princess and diva, you're totally in charge - even if people don't know it.
You want to be loved, adored, and worshiped. And you won't settle for anything less.
You're going to be a total star, and you won't let any of the "little people" get in your way.
Just remember, piggy, never eat more than you can lift!
Og hafið þið það!!
Þetta próf vakti upp svolitla nostalgíu, það verður að viðurkennast .

Ímyndarvandi Elvu

Ég á við ímyndarvanda að stríða.

Hann felst í því að tölvan mín nær ekki að ná sambandi við vefmyndavélar annara tölva. Sem þýddi til skamms tíma að þó minn heittelskaði gæti séð mig í rósrauðum bjarma í gegnum veraldarvefinn gat ég ekki séð hann.

Lengi vel héldum við að vandinn lægi hans megin. Þegar það kom í ljós að engin vandamál virtust vera fyrir aðra að virða andlit hans beindist grunur að Blánni.

Þannig að Bláin fór með mér í vinnuna í dag. Eftir hellings vesen með tæki og hugbúnað tókst mér að prófa hvort vinnutölvan gæti sýnt vangasvip á mér í gegnum MSN á meðan Bláin gæti sýnt andlit mitt að framan.

Það gekk að sjálfsögðu ekki!Pinch

Jorrit kom online og staðfesti að hann gæti, eftir sem áður, horft á mig pirrast.

Svo datt mér annað í hug. Prófa Skype!

Jú, í gegnum Skype gat ég loksins tékkað á því hvort Jorrit rakaði sig reglulega og allt það. Mikil gleði og mikið gaman!InLove

En að sjálfsögðu gat Jorrit ekki séð mig á Skype.

Þannig að við spjölluðum stuttlega í gegnum Skype, með vefmyndavélina hans í gangi þar, og svo í gegnum MSN með vefmyndavélina mína í gangi þar.

Erum við ekki sniðug?Whistling


Aðeins of mikið frumkvæði

Sonur minn hringdi í mig í dag. Það skeður ekki oft og hann þurfti endilega að gera það á þegar ég var í miðjum fyrirlestri um menn og náttúru Mývatns.

Ég þorði ekki annað en að svara og spurja skjálfandi röddu hvort nokkuð væri að. Bjóst alveg eins við táraflóði en hann bar sig ágætlega og sagðist alveg geta beðið aðeins.

Ég kláraði fyrirlesturinn aðeins stressuð en stökk á símann um leið og fólkið var horfið úr dyrunum.

Og hvað var erindið?

Jú, Magni og vinur hans höfðu verið að skipuleggja félagslíf sitt. Gleymdu bara að láta alla vita. Þannig nú var vinurinn í heimsókn og enginn fullorðinn að fylgjast með þeim félögum.

Sem betur fer hafði vinurinn látið sína forráðamenn vita að hann hugðist ekki koma heim til sín eftir skóla, og hvert mætti sækja hann þegar þau söknuðu hans.

Ég veit, ég veit, bölvað vesen þessir foreldrar sem þurfa alltaf að vita allt!!Pinch

Ég lokaði sjoppunni í nokkrar mínútur og brá mér aðeins heim. Þeir voru svona frekar niðurlútir drengirnir.

Við Magni ræddum málið aðeins í kvöld og urðum sammála um að það væri best að mamma væri höfð með í ráðum næst. Og það hafi verið gaman að fá vininn í heimsókn þrátt fyrir allt.Police


Krúnk krúnk

Þegar ég var að ganga heim úr vinnunni í dag kváðu við tveir skothvellir. Eða ég held að það hafi verið skothvellir. Ég sá svo sem engan veiðimann.  Ég vona bara að það hafi ekki verið einn af dýrasiðferðissérfræðingunum að freta á krummana sem hafa verið að skemmta sér í uppsteyminu við hæðina hliðina á þorpinu.

Mér finnst krummar skemmtilegir fuglar og að sjá þessa félaga snúa sér og vinda í vindinum hefur farið alveg ágætlega í mig.

En hrafnar eru með þeim ósköpum gerðir að þeir hafa aldrei kynnt sér mannlegar siðferðisreglur, sérstaklega þær sem snúa að hvernig maður finnur sér næringu. Þeir eru til dæmis ekki mikið að fetta tær út í það hvort maturinn sé enn á hreyfingu eða hvort hann hafi verið dauður mánuðum saman. Matur er matur og hann á að borða, svona ef fugl nær honum.

Þetta hefur ekki gert þá vinsæla á meðal bænda sem hneykslast á skorti á siðferði fuglanna.

Svo eru þeir líka ekki nógu sætir, svartir sem þykir ekki nægilega krúttlegt.

Þeir ættu kannski að fá sér PR-gaurinn sem höfrungarnir hafa? Höfrungar sem geta leyft sér að vera ótrúlega andstyggilegir og alltaf verið jafn sætir. Devil

Það þarf varla að taka fram að krummar eru ekki vinsælir hér um slóðir, svona nánast eins óvinsælir og tófan en þó skárri en minkurinn.

En það fer alltaf ákaflega í taugarnar á mér þegar fólk vill láta skjóta þá vegna þess að þeir séu svo vondir fuglar.

Þetta er oft sama fólkið sem vilja banna fólki að kalla hundana sína stráka og stelpur. Því að það má ekki gera dýrum mannlega eiginleika.

Hmm...

En kannski voru þetta ekkert skothvellir bara eitthvað annað.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband