Svona svo þið vitið þetta:
15.9.2007 | 21:33
Your Brain is Purple |
Of all the brain types, yours is the most idealistic. You tend to think wild, amazing thoughts. Your dreams and fantasies are intense. Your thoughts are creative, inventive, and without boundaries. You tend to spend a lot of time thinking of fictional people and places - or a very different life for yourself. |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Ik leert Nederlands
14.9.2007 | 21:23
en er samt bara komin á 3ju lexíu í rauðu bókinni þannig að ég veit ekki ennþá hvort sögnin að læra sé eins þegar maður talar um sjálfan sig eða um aðra.
Ég held samt barasta að hollenska sé málið. Amk miðað við það fólk sem ég hitti í vinnunni þessa dagana. Eintómir Hollendingar! Og í dag komu meira að segja mállaust (lesist: kunni ekki ensku né íslensku) hollenskt par og ruddu yfir mig heilu setningunum. Mállausir Hollendingar er nánast óþekktir hér um slóðir. Það er svo slæmt fyrir viðskiptin, er mér sagt.
Þetta voru indælis eldri hjón sem höfðu svo miklar áhyggjur af færðinni og það hefði verið svo ágætt að geta tjáð mig amk smá við þau. En þetta reddaðist nú allt á endanum og sólin bræddi þeim leið til Egilsstaða um hádegisbil.
Annars var afskaplega fínt og fallegt veður í dag. Lund fólks var líka mun léttari. Það hefur svo góð áhrif á skapið að þurfa ekki að hnipra sig saman á móti vindinum og píra augun útaf sól en ekki hraglanda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Luvlí
13.9.2007 | 16:24
Algerlega væri ég til í að vera sunnar á jarðarkringlunni í dag! Brr
Gæti látið mig hafa óheilbrigðar 30 gráður og krabbameinsvaldandi sól.
Það er rok með meiru og snjókomukrapavibbi úti.
Eitthvað bilað lið sem vill komast til Öskju.
Verst að það er örugglega bilaðra lið sem spyr ekki einu sinni!
En öll él stytta upp um síðir og á morgun verður örugglega orðið fært til að moka þessa vitleysinga upp úr sköflunum.
Læt fylgja eina tákræna mynd. Svona ef fólki vantar eina til að ná stemmingunni á rétt ról
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Blowing in the wind
12.9.2007 | 22:33
Fyrsta skítaveður vetrarins stendur núna yfir.
Ég ætlaði að vera dugleg og vinna úti í dag en hætti við það þegar það byrjaði að rigna.
Svo jókst ofankoman smátt og smátt og fraus. Jesús kristur! Þvílíkt vatnsveður! Ég held að hálf ársúrkoma svæðisins hafi komið niður á seinustu 10 klst!
Og þetta fína rok með!
Annað sem er að frétta er að kláraði Harry Potter í gær, um miðnættið.
Fékk bókina lánaði hjá Valdísi á Föstudaginn. Hef dreymt Voldemort og eltingaleiki síðan. Gott ef ekki að ég hafi haft hausverk líka! Bókin stendur alveg undir væntingum. Ég verð að segja að ég dáist alveg af Rowling fyrir að halda út og láta plottið ganga upp.
Svo fórum við Magni í mat hjá sjálfboðaliðunum í kvöld. Indverskt karrí og ís og ávextir. Mér fannst maturinn góður og fólkið skemmtilegt en Magni var ekki alveg að fíla sig. Þessir útlendingar alltaf! Þegar ég sagði honum að við myndum fá "grænmetismat" sagði hann að hann hafi haldið að við værum hætt slíku, svona út af því að Jorrit væri í útlöndunum. Og stundi.
Og Bergþóra kom við, sem var alveg ágætt.
En núna bara verð ég að fara í rúmið því að svefninn hefur þurft að sitja á hakanum seinustu daga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vesenið á mér!
10.9.2007 | 18:50
Jorrit er búinn að panta jólaflugmiðana þannig að nú get ég farið að telja niður.
Til þess að geta það ákvað ég að setja inn "niðurtalning til jóla" á síðuna. Það tókst nú ekki betur til en svo að þegar ég kom heim áðan var allt dottið út og síðan var eins og nýgerð.
Svo ég fór að vesenast og snúa öllu við. Og útkoman er svona: blátt og kalt.
Ég veit ekki hvort niðurtalningin hefur haldist inni. Það er kannski bara ágætt ef hún náist ekki inn á síðuna fyrr en eftir svona 6 vikur. Talan sem birtist er svo óbærilega há. Ég meina: 20 dagar búnir, 100 eftir. Úff
Kannski snýst mér hugur á morgun.
Annars fór ég á Eyrina í gær til að ná í erfðaprinsinn.
Fór aðeins í Hagkaup fyrst og eyddi pening. Ég verslaði langþráða ryksugu á heimilið og svo Astrópíudiskinn sem er nú kyrfilega afritaður og stokkast núna fram og aftur í itunes.
Ryksugan hefur líka verið prófuð. Fjaðrafokið í stofunni er heldur minna og allar sængurnar eru núna loftlausar og pressaðar upp í skáp. Kannski ekki 75% minni en áður en amk 50% sem telur sko þegar maður kemst varla um svefnherbergið fyrir þeim!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ammæli
6.9.2007 | 21:56
Hann Hrafnkell Myrkvi snillingur er 2ja ára í dag. Ég reyndi að tala við hann áðan en hann vildi bara tala við átrúnaðargoðið sitt hann Dadda Dein.
Til hamingu pjakkur!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Ja, við hittumst allavega ekki á krá"
6.9.2007 | 21:47
Fór á hina stórgóðu mynd Astrópíu í gær með Valdísi systir.
Það var alveg æðisleg tilfinning fyrir mig, hlutverkaspilafríkið, að horfa á þessa mynd. Þarna var söguþráður sem ég gat algerlega fílað mig inn í. Ég hef nefnilega staðið í Nexus og séð afgreiðslumennina missa sig í yfir nærveru minni þar. Og séð pirruðu augnatillitin frá fastakúnnunum sem voru ekki með þetta sérstaka eitthvað (brjóst og sítt hár).
Og þessi myndasögu-klippingar komu afskaplega vel út að mínu mati og endirinn var alveg hæfilega sýrður.
Ég hef nefnilega verið í ófáum svona roleplaying partíum og ég veit að nördar eru ekki eins friðsamir og haldið er
25 m/s
4.9.2007 | 20:00
Það er búið að vera hressilegt veður hér í dag. Það er ekki oft sem að öldurnar á vatninu hætta að stækka og byrja að fletjast út en það skeði um hádegisbilið í dag.
Gönguhópurinn sem settist inn á okkur til að borða nestið sitt var allur grár, þaes þar sem fólk hafði svitnað.
Ég sleppti að fara í bíó. Er ekki alveg tilbúin að hætta lífinu fyrir bíóferð. En ætla að fara á morgun.
En það eru kostir og gallar við allt. Ég hef þá bara meiri tíma til að leika mér með nýja dótið mitt. Er búin að ná mér í itunes, msn og skype.
Þá er bara spurning um hvort einhver nenni að tala við mig eða hvort ég nenni að tala við einhvern?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Blástakkur mættur!
3.9.2007 | 13:06
Blástakkur Dell mætti núna í hádeginu. Nú verðum við að fá tækifæri á að kynnast en verst hvað vinnan flækist fyrir
Þarf að skreppa upp á Leirhnjúk en svo ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ferð í Kaupstaðinn
2.9.2007 | 15:52
Það er alltaf alveg ótrúlegt hvað mannlífið róast fljótt hérna við vatnið þegar haustar. Og núna eru alveg 9 mánuðir þangað til að æsingurinn byrjar á ný!!
Úff, ég vona að ég verði löngu flogin þá!
Við Steini stuð fórum á Eyrina í gær. Keyptum ritvinnslukerfi fyrir nýju græjuna og fórum í bíó. Mig langaði til að fara á Astropíu en barnið vildi fara á rottumyndina (ratta-eitthvað). Og það var alveg sama hvað ég reyndi að segja honum að rottur væru ógeðslegar og það væru alveg geislasverð í hinni myndinni, hann lét sig ekki! Meira að segja dugði plakattið fyrir utan bíóið ekki.
Svo við fórum á rottu-myndina. Hún var alveg ágæt og aðalsöguhetjan ekkert ógeðsleg þó ættingjar hennar voru það á stundum.
Mig langar samt á Astropíu!!
Svo versluðum við smá í Bókvali.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)