Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Mentionitis

Er til eitthvert íslenskt heiti á þessari áhugaverðu og algengu geðhliðrun? Bara að spá?

Annars er það að frétta hér að norð-austur sellur mósaik-stofnunarinnar skutu suðurliðinu ref fyrir rass í dag og héldu sinn eigin jóla-hádegismat. Hann var bara ágætur þó að latte-ið hafi verið heldur undir meðalagi. Það var frekar bara eins og kaffi með mjólk sem er auðvitað ekki það sama! Shocking

Magni Steinn er afskaplega dulegur þessa dagana og virðist vera algerlega ákveðinn í að sleppa við kartöflu þessi jól (svona því hann hefur hingað til fengið svo margar). Hann lagaði til í herberginu sínu í gær og tók dótið sitt úr stofunni í dag, nánast án þess að mögla.

Svo tók hann upp á því að lesa eina og eina blaðsíðu af bókinni sem við lásum fyrir svefninn, nánast eins hratt og ég, og með leikrænum tilburðum. Móno-tónninn er á hröðu undanhaldi hjá honum. Happy


Þolraunin

Þetta er búin að vera alveg ágæt helgi hjá okkur Magna.

Við fórum niður í Hrísateig á föstudagkvöldið. Þar voru Edda og Hrafnkell fyrir ásamt gamla settinu og Rögnu. Við skelltum okkur í pottinn eftir kvöldmatinn. Eitthvað var fólk ósammála um hvað væri nægilegur hiti í pottinum. Sumum fannst óþarfi að kæla hann niður með snjó. En allt fór vel að lokum (ég vann og potturinn varð rosa heitur).

Ég brunaði, í slyddu og leiðindar færi, upp eftir um kvöldið. Hugmyndin var að þrífa húskofann áður en ég færi niður í Mývatnsstofu á laugadaginn. Það gekk eitthvað hægt að koma sér úr bólinu en ástandið var þó heldur betra kl 2 en um morguninn.

Svo var aftur brunað niður að sjó. Liðið var búið að fara í pottinn þegar ég og Valdís komum svo við létum bara renna í aftur og fórum ofan í þegar Jersey Girl var búin. Þegar það var að renna í stóðum við eitt sinn við stofugluggann og virtum fyrir okkur öldurnar í pottinum. Það eiga náttúrulega ekki að vera háar öldur í heitapottum en það var smá rok. Errm

Þar sem við erum djarfar konur létum við rok og skafrenning ekkert stoppa okkur. Það var reyndar ekki gert nægilega ráð fyrir vindkælingu þegar skrúfað var frá upphaflega svo að ég þurfti að fara aftur upp úr og ganga í gegnum snjóinn inn í bílskúr og bæta við hitann. Enn Íslenskar konur eru alls engar gungur, frekar en mótpartar þeirra! Og við þurftum að halda á rauðvínsglösunum svo þau fykju ekki um koll. En þetta var ákveðin þolraun og á endanum varð potturinn almennilega heitur og það dró úr vindinum. Sem sagt við stóðumst prófið, hetjurnar  Cool


Santa baby...

...slip a sable under the tree, for me
I've been an awful good girl... Kissing

Ég á reyndar ágætis feld, sem ég nota lítið sem ekkert, en mig langar reyndar í ýmislegt annað...

  • Ilmvatn. Átti lengi NoaNoa sem var alveg æðislegt en nýjir tímar, nýr ilmur...
  • Legghlífar. Ekki svona 80', bleikar úr stroffi heldur svona 00', svartar og með stáli undir ilina.
  • Best of Queen, 1, 2, og 3. Need I say more?
  • Myndavél. Svona fyrir þá sem vilja gefa mér eitthvað almennilegt.
  • Nýjan síma. Sama og fyrir myndavélina.
  • Allskonar sætt, húslegt, helst eitthvað sem hægt er að hengja á veggi eða leggja á gólf.
  • Bækur. klikka aldrei.´
  • Tónlist. Það er þá alltaf hægt að skipta ef þið veljið eitthvað úr fasa við mig.
  • Útivistardót. Ég veit... vinnan... en samt...
  • Og fleira og fleira...

...and hurry down the chimney tonight Heart


Jólaklippingin

Ég fór í klippingu í dag. Ef núna alveg ægilega sæt og vel tilhöfð. Auðvitað hélt ég í rauða þemað sem hefur reynst ágætlega seinustu ár. Bara aðeins meiri strípur til að lýsa upp skammdegið.

Ég las nú einhvers staðar að konur sem lituðu hárið á sér rautt gerðu það í auglýsingarskyni, því rauðara því sterkari skilaboð. Það getur vel verið að það sé satt en í mér finnst ég bara sætust rauðhærð. Cool

Það er bara fjárans ókostur að ég skildi hafa fengið ss-heimsókn í gær og í fyrradag á meðan hárið var einungis teyjuhæft. En maður getur ekki verið alltaf heppinn. Wink


Fattarinn

Ég viðurkenni alveg að ég er stundum aðeins út á þekju. Svolítill bjöllusauður eins og Lísa í Skógahlíð orðaði það í denn.

Þannig er það alveg happa og glappa hvort ég skilji sumt grín og hafa skapast nokkur vandræðileg augnablik í fortíðinni þegar ég hef tekið eitthvað alvarlega sem var bara ætlað sem spaug.

Langi fattarinn verður líka til þess að stundum smellur merking hlutanna saman á óheppilegum tímum, eins og í svefnrofanum á kvöldin. Það er náttúrulega óþolandi. Að vera á leið inn í draumalandið og svo; bang! Tenging kemst á og maður getur ómögulega sofnað fyrir hugstrumpinu. Merkilegt er að þetta kemur sárasjaldan fyrir mig á morgnanna, svona til að hjálpa mér á fætur. Neinei, bara á kvöldin.

Óskup vildi ég að þessi fattari væri heldur styttri þannig að ég gæti svarað fyrir mig á staðnum. Í staðinn fyrir að liggja kannski í rúminu klukkan hálf tvö á nóttunni semjandi svör sem áttu við kl níu kvöldið áður. Þó það væri ekki nema vegna þess hvað það myndi bæta svefninn hjá mér!

Skítt með að vera hnittinn og fylgin sér! Eða ná að mála annað fólk inn í horn þegar það hefur hugsanlega talað af sér!

Bara að fá svefnfrið!! Gasp

 


Spilakvöld

Núna er maður að rakna úr rotinu.

Við spiluðum til rúmlega 3 í gærkvöldi. Svona meðal spilakvöld en ekki mikið um barsmíðar og ofbeldi. Verð að bæta úr því næst Devil

DM-inn notaði gamallt trikk þegar tvö úr hópnum hittu svona gellu: succumbus

En hvenær hefur nokkur ævintýrahetja grætt á því að vera vesenast í gömlu yfirgefnu húsi sem nágrannarnir forðast eins og þeir geta?

 


Jólaskap

Ég er búin að gera mitt allra besta til að grafa jólalagareynslu mína síðan í gær. Fann tvöfaldan jólalagadisk heima í Hrísateig og hef nú hlaðið honum inn í Dellu og hlusta af öllu afli.

Ekkert nennilag þar!

Edda systir er líka á svæðinu og höfum við getað rætt litgreiningar á hvítum hestum og fleira því tengdu. Tounge

Það er spilakvöld í kvöld og er ég þvílíkt að koma mér í gírinn. Vonandi tekst mér að fókusa orkuna og beina henni til Starmantle frekar en í naflaskoðunarpælingar. Enda þó ég hafi náttúrulega afskaplega fallegan nafla þá er allt í lagi að horfa á eitthvað annað við og við.


ÉG nenni ekki...

...að hlusta endalaust á "Ef ég nenni..." ein jólin enn!

Ég hef nú áður tekið smá rant út af þessu "jóla"-lagi en þetta var nú fyrsta þannig lag sem ég heyrði þetta árið. Urr Angry

Þá vil ég frekar heyra "Jólahjól" milljón sinnum!!!!(!)

Annars rakst ég á þessa grein á mbl í morgun: http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1238561

Ég held að fréttin sé einka skilaboð til mín frá guði um að slappa aðeins af. Annars mun ég að öllum líkindum hafna riddaranum á hvíta hestinum á þeim forsendum að brynjan hans sé of vel pússuð*

 

*5 upphrópunarmerki nb, lagast örugglega með vorinu Wink


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband