Jólageðveiki!!!!!
19.12.2006 | 11:22
Fór á Eyrina í gær. Sannaði ást mína á systrum mínum svo það verður ekki um villst! Þessi ferð verður sko notuð sem dæmi um hana ef einhver efast í framtíðinni!
Það skall á asahláka í gærdag þannig að glæra-hálka varð úr. Svo kom rok... stundum þvert yfir veginn. Í þessum aðstæðum fór ég með eina afkomanda minn inn á Akureyri í gær!!
Bilun?
Já alveg örugglega. Mér til varnar var það að þegar ég lagði af stað var ekki rok.
Þegar út á Eyrina var komið þeyttumst við systurnar búð úr búð og redduðum alveg ótrúlega mörgum jólagjöfum. Magni var frekar sáttur. Hann fékk að vera endalaust lengi í Dótabúðinni á meðan ég og Edda fórum með Rögnu eða Valdísi til að velja gjöf handa hinni.
Svo tók við nett stressandi heimferð. Rokið var samt við sig en hálkan var heldur á undanhaldi. Þannig var ég ekki nema svona 1 1/2 tíma á leið heim í staðinn fyrir 2 tíma að heiman.
Á leiðinni heim sáu náttúruöflin fyrir þeirri mögnuðustu ljósasýningu sem ég hef barasta séð! Amk hef ég ekki áður séð norðurljósin lýsa upp umhverfið eins og þau gerðu í gærkvöldi. Himininn logaði! á tímabili var einskonar hringiðu-munstur rétt norðan við hvirfilpunktinn. Og litirnir!
Ég hélt nefnlega lengi að bleik, blá og rauð norðurljós væru bara fyrirbæri sem væru til í sögum sem sagt væri útlendingum af Two-flower gerðinni. En ég get núna staðfest að það er ekki rétt!
Ég mæli samt ekki með því að reyna að keyra við þessar aðstæður
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bernskunnar jól
17.12.2006 | 18:07
Ég fór á Túpilakkana í Skjólbrekku í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer á heila tónleika með þeim en ég hafði orðið svo fræg að sjá til þeirra á mærudögum í sumar.
Þau voru bara algerlega frábær! Svo einfalt var það!
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Seinasta helgi fyrir jól
16.12.2006 | 12:09
Nú er maður staddur enn og aftur í Hrísateignum.
Það stendur til að baka laufabrauð og hugsanlega einhverjar jólasmákökur.
Þar sem ég er bara 2. kynslóðar innflytjandi í Þingeyjarsýslum þá erum við ekki með eins háttþróaðar hefðir í laufabrauðsbakstri og margir innfæddir. Við gerum laufabrauðið til þess að borða það, ekki til þess að horfa á það. Þess vegna er hámark útskurðarlistarinnar hér á bæ að gera upphafstafina okkar á kökurnar með laufabrauðshjólinu og bretta uppá. Þetta er gert við svona 10 kökur, hinar 50 eru bara steiktar óbrettar. Ég veit að þetta er hjóm eitt við alvarlega laufabrauðgerð.
Svo stendur til að baka klassískar smákökur eins og loftkökur ( aka þingeyinga, aka mývetninga), Hvesperstikk, kornflekskökur og sörur
Kúrt-heima-dagur
14.12.2006 | 21:26
Magni var bara hress í morgun þegar hann vaknaði. Enginn hiti eða neitt. En það breytti því ekki að hann varð að vera heima í dag og þar af leiðandi ég.
Þetta var rólegur dagur. Þegar búðin opnaði fór ég og verslaði bökunarvörur og skellti svo í 2 sortir af jólasmákökum, piparkökum og bóndakökum. Ég er ekki frá því að ég hafi fundið fyrir örlitlu jólaskapi við þessar aðgerðir. En ekki nægu til þess að setja upp skraut eða hugsa uppbyggjandi um jólagjafir.
Þar sem ég er búin að kúra svo mikið í dag sé ég varla fram á að sofna á eðlilegum tíma í kvöld. Það má þó alltaf reyna.
Magni veiki
13.12.2006 | 20:41
Magni var eitthvað þreytulegur í dag og þegar ég kom heim lá barnið í sófanum og tilkynnti mér að hann væri voða þreyttur og hefði sofnað áðan.
Ekki alveg eðlileg hegðun hjá drengnum svo ég rauk með hendina á ennið á honum og viti menn! Alveg glóandi!
Svo það verður legið heima í veikindum á morgun. Vonandi verða þau nú skammvinn.
Mentionitis
12.12.2006 | 22:01
Er til eitthvert íslenskt heiti á þessari áhugaverðu og algengu geðhliðrun? Bara að spá?
Annars er það að frétta hér að norð-austur sellur mósaik-stofnunarinnar skutu suðurliðinu ref fyrir rass í dag og héldu sinn eigin jóla-hádegismat. Hann var bara ágætur þó að latte-ið hafi verið heldur undir meðalagi. Það var frekar bara eins og kaffi með mjólk sem er auðvitað ekki það sama!
Magni Steinn er afskaplega dulegur þessa dagana og virðist vera algerlega ákveðinn í að sleppa við kartöflu þessi jól (svona því hann hefur hingað til fengið svo margar). Hann lagaði til í herberginu sínu í gær og tók dótið sitt úr stofunni í dag, nánast án þess að mögla.
Svo tók hann upp á því að lesa eina og eina blaðsíðu af bókinni sem við lásum fyrir svefninn, nánast eins hratt og ég, og með leikrænum tilburðum. Móno-tónninn er á hröðu undanhaldi hjá honum.
Þolraunin
10.12.2006 | 21:22
Þetta er búin að vera alveg ágæt helgi hjá okkur Magna.
Við fórum niður í Hrísateig á föstudagkvöldið. Þar voru Edda og Hrafnkell fyrir ásamt gamla settinu og Rögnu. Við skelltum okkur í pottinn eftir kvöldmatinn. Eitthvað var fólk ósammála um hvað væri nægilegur hiti í pottinum. Sumum fannst óþarfi að kæla hann niður með snjó. En allt fór vel að lokum (ég vann og potturinn varð rosa heitur).
Ég brunaði, í slyddu og leiðindar færi, upp eftir um kvöldið. Hugmyndin var að þrífa húskofann áður en ég færi niður í Mývatnsstofu á laugadaginn. Það gekk eitthvað hægt að koma sér úr bólinu en ástandið var þó heldur betra kl 2 en um morguninn.
Svo var aftur brunað niður að sjó. Liðið var búið að fara í pottinn þegar ég og Valdís komum svo við létum bara renna í aftur og fórum ofan í þegar Jersey Girl var búin. Þegar það var að renna í stóðum við eitt sinn við stofugluggann og virtum fyrir okkur öldurnar í pottinum. Það eiga náttúrulega ekki að vera háar öldur í heitapottum en það var smá rok.
Þar sem við erum djarfar konur létum við rok og skafrenning ekkert stoppa okkur. Það var reyndar ekki gert nægilega ráð fyrir vindkælingu þegar skrúfað var frá upphaflega svo að ég þurfti að fara aftur upp úr og ganga í gegnum snjóinn inn í bílskúr og bæta við hitann. Enn Íslenskar konur eru alls engar gungur, frekar en mótpartar þeirra! Og við þurftum að halda á rauðvínsglösunum svo þau fykju ekki um koll. En þetta var ákveðin þolraun og á endanum varð potturinn almennilega heitur og það dró úr vindinum. Sem sagt við stóðumst prófið, hetjurnar
Santa baby...
8.12.2006 | 14:18
...slip a sable under the tree, for me
I've been an awful good girl...
Ég á reyndar ágætis feld, sem ég nota lítið sem ekkert, en mig langar reyndar í ýmislegt annað...
- Ilmvatn. Átti lengi NoaNoa sem var alveg æðislegt en nýjir tímar, nýr ilmur...
- Legghlífar. Ekki svona 80', bleikar úr stroffi heldur svona 00', svartar og með stáli undir ilina.
- Best of Queen, 1, 2, og 3. Need I say more?
- Myndavél. Svona fyrir þá sem vilja gefa mér eitthvað almennilegt.
- Nýjan síma. Sama og fyrir myndavélina.
- Allskonar sætt, húslegt, helst eitthvað sem hægt er að hengja á veggi eða leggja á gólf.
- Bækur. klikka aldrei.´
- Tónlist. Það er þá alltaf hægt að skipta ef þið veljið eitthvað úr fasa við mig.
- Útivistardót. Ég veit... vinnan... en samt...
- Og fleira og fleira...
...and hurry down the chimney tonight
Jólaklippingin
6.12.2006 | 21:15
Ég fór í klippingu í dag. Ef núna alveg ægilega sæt og vel tilhöfð. Auðvitað hélt ég í rauða þemað sem hefur reynst ágætlega seinustu ár. Bara aðeins meiri strípur til að lýsa upp skammdegið.
Ég las nú einhvers staðar að konur sem lituðu hárið á sér rautt gerðu það í auglýsingarskyni, því rauðara því sterkari skilaboð. Það getur vel verið að það sé satt en í mér finnst ég bara sætust rauðhærð.
Það er bara fjárans ókostur að ég skildi hafa fengið ss-heimsókn í gær og í fyrradag á meðan hárið var einungis teyjuhæft. En maður getur ekki verið alltaf heppinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fattarinn
5.12.2006 | 15:50
Ég viðurkenni alveg að ég er stundum aðeins út á þekju. Svolítill bjöllusauður eins og Lísa í Skógahlíð orðaði það í denn.
Þannig er það alveg happa og glappa hvort ég skilji sumt grín og hafa skapast nokkur vandræðileg augnablik í fortíðinni þegar ég hef tekið eitthvað alvarlega sem var bara ætlað sem spaug.
Langi fattarinn verður líka til þess að stundum smellur merking hlutanna saman á óheppilegum tímum, eins og í svefnrofanum á kvöldin. Það er náttúrulega óþolandi. Að vera á leið inn í draumalandið og svo; bang! Tenging kemst á og maður getur ómögulega sofnað fyrir hugstrumpinu. Merkilegt er að þetta kemur sárasjaldan fyrir mig á morgnanna, svona til að hjálpa mér á fætur. Neinei, bara á kvöldin.
Óskup vildi ég að þessi fattari væri heldur styttri þannig að ég gæti svarað fyrir mig á staðnum. Í staðinn fyrir að liggja kannski í rúminu klukkan hálf tvö á nóttunni semjandi svör sem áttu við kl níu kvöldið áður. Þó það væri ekki nema vegna þess hvað það myndi bæta svefninn hjá mér!
Skítt með að vera hnittinn og fylgin sér! Eða ná að mála annað fólk inn í horn þegar það hefur hugsanlega talað af sér!
Bara að fá svefnfrið!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)